Hér er að finna ýmislegt tengt Linux og UNIX almennt t.d. hjálparsíður fyrir byrjendur.


Smá saga

UNIX stýrikerfið spratt upp úr misheppnaðri tilraun helstu tölvumógúla sjöunda áratugarins til þess að búa til "timesharing" stýrikerfi. Þátttakendur voru m.a. Bell-Labs og MIT háskólinn. Verkefnið var kallað Multics. Bell Labs drógu sig út úr verkefninu árið 1969 en nokkrir starfsmenn Bell, m.a. þeir Dennis Ritchie og Ken Thompson, héldu áfram grúski sem leiddi að lokum til fæðingar UNIX.

Bell Labs halda uppi skemmtilegum vef um sögu helstu verkefna þeirra og þar má finna ágætt yfirlit yfir sögu UNIX.

GNU/Linux, eins og það heitir réttu nafni, á rætur sínar í andstöðu eins manns við þróun hugbúnaðarframleiðslu á níunda áratugnum. Sá maður er Richard Stallman, en hann var starfsmaður á gervigreindarrannsóknastofu MIT á þeim tíma, eins og svo margir frumkvöðlar á sviðinu. Hann hélt fræga ræðu í Tækniháskólanum í Stokkhómi árið 1986 þar sem hann skýrir sín sjónarmið.

Fyrir byrjendur

Fyrir alla

Síðast breytt: Sun Oct 22 19:03:30 UTC 2006