Hér má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um LaTeX umbrotskerfið.
LaTeX er umbrotskerfi sem hentar mjög vel til ritunar á vísinda- og/eða stærðfræðilegu efni. Hægt er að skrifa flóknustu formúlur og bæta inn myndum og gröfum á rökrænan hátt. Helsti kostur kerfisins er þó að höfundurinn þarf litlar áhyggjur að hafa af útliti textans, kerfið sér um það.
Eins og nafnið gefur til kynna þá tekur aðeins 90 mínútur að verða útlærður TeX-ari með aðstoð þessa skjals. Það er á "Post Script" formi og þarf því Ghost View (í Linux) eða GS View (í Windows) til þess að skoða það.
LaTeX in 90 minutes (ps). Nýjustu útgáfu af því má finna á CTAN (sjá neðar).
Gott er að hafa dæmi um LaTeX skjal til að læra af. Hér er skjal sem Einar Jón (ejg@hi.is) félagi minn útbjó. Það miðar við að maður sé að nota LaTeX uppsetninguna á herdubreid (einni af vélum Reiknistofnunar Háskólans).
Til þess að þýða skjalið á herdubreid er gefin skipunin "latex template.tex". Útkoman úr þýðingunni er skjalið template.dvi sem má síðan breyta í ýmis önnur form. Til þess að breyta því á "Post Script" form er gefin skipunin "dvips -f template.dvi -o template.ps".
Síðast breytt: Sun Oct 22 19:03:30 UTC 2006